
Kristján stýrir hér Ingbjörgu úr smiðju Sólplasts í dag
Báturinn Oddur á Nesi hefur lent í ýmsum hremmingum, en í fyrra kviknaði tvisvar í bátnum. Oddur á Nesi hefur fengið nýtt nafn og ber nú kvenmannsnafnið Ingibjörg. Í dag var Ingibjörg dregin út úr smiðju Sólplasts og er áætlað að báturinn verði settur á flot síðar í vikunni.
Ingibjörg mun fara á Rifshöfn á Hellissandi.
Á meðfylgjandi myndbandi má sjá brunann á Oddi sem varð rétt fyrir kl. 23 miðvikudaginn 25. mars 2009. Allt tiltækt slökkvilið Sandgerðis var kallað út og gekk greiðlega að slökkva eldinn.
Mynd: Smári/245.is | lifid@245.is